20.01.2010
Tveir KAG-félagar náðu merkum áfanga í lífinu á dögunum og fylltu marga tugi, 140 samtals! Séra Gunnlaugur fagnaði sextugsafmæli
sínu og Ingvi Rafn varð áttræður. Fyrir báða þessa heiðursmenn var að sjálfsögðu sungið!
14.01.2010
Undanfarið hafa nokkrir laghentir KAG-félagar unnið að miklum endurbótum í „suðurstofunni“ í Lóni og skjalageymslu
kórsins. Hent var út gömlu gólfteppi og gólfin lögð fíneríis eikarparketi í staðinn. Þá var
allt málað hátt og lágt og nýjar innréttingar keyptar í skjalageymsluna. Skemmst er frá því að segja að munurinn er
mikill!
26.12.2009
Karlakór Akureyrar-Geysir óskar öllum velunnurum sínum og tónleikagestum, gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári, með von um
áframhaldandi góðan söng og samskipti.
08.12.2009
Það er annríki í jólamánuðinum hjá
félögum í Karlakór Akureyrar-Geysi og jólalögin sungin víða. Kórinn kemur fram á ýmsum stöðum fram að jólum.
Fimmtudagskvöldið 10. desember, tekur KAG þátt í styrktartónleikum fyrir Hljóðfærasafnið á Akureyri, sem haldnir verða
á Græna hattinum. Þar verður kórinn í portinu fyrir utan Græna hattinn og tekur á móti tónleikagestum með
jólalögum, milli kl. 20 og 21.
04.12.2009
Hin árlega 1. des. samkoma KAG var einstaklega vel heppnuð að þessu sinni. Skemmtileg söngstund með eldri borgurum, frábært
hangikjötskvöld í Lóni, árangursríkt bögglauppboð og heldur betur óvænt uppákoma í lokin!
16.11.2009
Í kvöld byrjuðum við KAG félagar að æfa jólalögin. Því fylgir alltaf sérstök stemmning, enda var venju
fremur létt yfir mönnum á æfingunni. Svo erum við líka búnir að heimta Valmar söngstjóra úr klóm svínaflensunnar,
en hann hefur ekki getað verið með okkur á undanförnum æfingum.
05.11.2009
Í kvöld tók Karlakór Akureyrar-Geysir þátt í tónleikum í Akureyrarkirkju, til styrktar Aflinu, samtökum gegn kynferðis- og heimilisofbeldi. Þar komu fram auk KAG; Friðrik Ómar, Óskar Pétursson, Inga Eydal, Hundur í
óskilum og Heimir Ingimarsson. Kynnir var Bryndís Ásmundsdóttir leik- og söngkona.
26.10.2009
KAG fær góða heimsókn á næstunni þegar félagar í Karlakórnum Drífanda á Fljótsdalshéraði
koma norður til Akureyrar. Eftir góða skoðunarferð um Eyjafjörðinn sameinast kórarnir á tónleikum í Glerárkirkju, laugardaginn 7.
nóvember, kl. 16.
21.09.2009
Nú er sumri tekið að halla og það þýðir meðal annars að hefðbundið vetrarstarf kórsins fer í gang. Fyrsta æfingin
verður mánudagskvöldið 21. september og hefst klukkan átta í Lóni. Nú verður sá háttur hafður á æfingum að fyrir
kaffi á mánudögum verða raddæfingar en eftir kaffi á miðvikudögum verður síðan farið í eldra efni, sem þarf að halda
við og við eigum að kunna. Ýmislegt verður gert í vetur, smátt og stórt...
20.09.2009
Nú er farið að síga á sumarið og það þýðir að Karlakór Akureyrar - Geysir hefur starfsemi að
nýju. Reyndar erum við búnir að vera duglegir í sumar við alls konar uppákomur en nú er sem sagt
komið að venjulegum æfingum og hefðbundnu vetrarstarfi. Valmar verður áfram stjórnandi okkar og held ég að allir séu ánægðir
með það.