Fréttir

Hafnarfjarðardæturnar kusu að sjá Júróvision fyrir norðan

Kosningahelgi - Júróvisiónhelgi - tónleikahelgi. 28. - 30. maí. Allt er þá þrennt er. Þessa einu sönnu kosningahelgi, nú eða Júróvisiónhelgi valdi Kvennakór Öldutúns sér til að koma í heimsókn til okkar. 

Aðalfundur KAG

Aðalfundur Karlakórs Akureyrar-Geysis, fyrir starfsárið 2009-2010, var haldinn í Lóni mánudaginn 17. maí, kl. 20. Hefðbundin aðalfundarstörf; skýrslur, kosningar og önnur mál.

Vorfagnaður og árshátíð

Yfirleitt er árshátíð okkar KAG-manna haldin í febrúar, en mikið var að gera og Lónið þéttsetið allar helgar. Á þeim tíma var ákveðið að skella hátíðinni bara saman við vorfagnaðinn, sem fyrir vikið varð náttúrlega alveg frábær. 

Vortónleikarnir okkar...

Fyrri vortónleikarnir okkar voru haldnir í nýju menningarhúsi Dalvíkinga, Bergi, að kvöldi föstudagsins 14. maí, en þeir seinni að venju í Glerárkirkju seinni part laugardagsins 15. maí.  

Vortónleikar KAG

Karlakór Akureyrar-Geysir heldur vortónleika sína á Dalvík og Akureyri, 14. og 15. maí. Vortónleikar eru jafnan hápunktur starfsársins og þar fá tónleikagestir að heyra afrakstur æfinganna hjá KAG-félögum í vetur. 

Vorverkin í garðinum

Í kvöld mættu nokkrir vaskir KAG félagar í árlega vorvinnu á lóðinni umverfis Lón. Þar var klippt, rakað, sópað, spúlað, tínt rusl o.fl. Það skiptir auðvitað máli að umhverfi Lóns sé snyrtilegt og þannig er það svo sannarlega eftir þessa árangursríku kvöldstund. Stútfull kerra af greinum og allskyns rusli, eftir veturinn, er farin á haugana! Fleiri myndir hér.