Fréttir

Frostrósaverkefnið tókst vel

KAG tók þátt í tónleikum Frostrósa á Akureyri og nú í annað sinn. Undirbúningur fyrir tónleikana stóð yfir í nokkrar vikur og árangur erfiðisins kom í ljós á glæsilegum tónleikum í Höllinni laugardaginn 17. desember. 

Styrkur úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA

Karlakór Akureyrar-Geysir var á meðal styrkþega úr Styrktar- og menningarsjóði KEA árið 2011. KAG fékk úthutað 250.000 krónum úr styrkflokki ætluðum þátttökuverkefnum. Styrkurinn er ætlaður til tónleikahalds í tilefni af 90 ára afmæli kórsins.  

Sungið fyrir Aflið

Í kvöld söng KAG á árlegum styrktartónleikum Aflsins, samtökum gagn kynferðis- og heimilisofbeldi. Fjöldi fólks var á tónleikunum sem haldnir voru í Akureyrarkirkju. Margir listamenn komu þar fram og allir gáfu vinnu sína. KAG endaði prógrammið með þremur lögum og rak endahnútinn á skemmtilegt kvöld með hressilegum Hermannakór úr óperunni Faust! 

Æfingar hafnar og allt að gerast!

Þá er nýtt starfsár KAG hafið og æfingar byrjaðar af fullum krafti. Margt spennandi er framundan hjá kórfélögum og ljóst að þeim mun ekki leiðast næstu mánuðina! Meðal annars má nefna söng með Karlakór Hreppamanna, Frostrósatónleika, Hæ Tröllum, Heklumót á Ísafirði, Vortónleika og magnaða Skotlandsferð næsta sumar!  

Gestir út um allt í Hofi

Kórinn var fenginn til að leiða fjöldasöng í beinni útsendingu á þætti Margrétar Blöndal og Felix Bergssonar "Gestir út um allt" á Rás tvö sunnudaginn 28. ágúst. Formaðurinn var fenginn í viðtal og sagði meðal annars frá fyrsta söng í Hofi.

Aðalfundur, kosningar og ný stórn

Aðalfundur KAG var haldinn í Lóni mánudaginn 23. maí. Eins og lög gera ráð fyrir fóru fram "venjuleg aðalfundarstörf", skýrsla formanns, skýrsla gjaldkera og féhirðis, kosningar í stjórn og fleira. Þá var rætt um Bretlandsferðina sem fyrirhuguð er á næsta ári og auðvitað önnur mál.  

Vortónleikar KAG

Komið er að hinum árlegu Vortónleikum Karlakórs Akureyrar-Geysis. Þeir verða í Glerárkirkju, laugardaginn 21. maí, klukkan 15. Vortónleikarnir eru hápunktur starfsárs KAG, uppskera mikillar vinnu undanfarinna mánaða.

KAG og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands

Laugardaginn 14. maí tekur Karlakór Akureyrar-Geysir þátt í tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og Tónlistarskólans á Akureyri í Hofi. 40 danskir hljóðfæraleikarar frá tveimur tónlistarskólum á Kaupmannahafnarsvæðinu leika einnig á tónleikunum. 

Myndarlegir!

Það er ekki venjan að KAG félagar klæði sig upp í smóking fyrir æfingar. Þannig var það nú samt á síðustu æfingu, en tilefnið var myndataka. Kórinn var drifinn upp í rútu og keyrt með hann niður að Oddeyrarbryggju. Þar var Kristjana formannsfrú mætt og smalaði hún kórnum á fyrirfram ákveðinn stað og smellti án afláts. Þaðan var ekið í Glerárkirkju og tekin "stúdíómynd". Takk fyrir okkur Kristjana!     

Það vorar og sönghvötin magnast.

Nú styttist óðum í hápunkt starfsársins; vortónleika KAG. Þeir verða 20. og 21. maí. Þessa tónleika hafa KAG félagar undirbúið í allan vetur, í bland við fjölmörg önnur verkefni. Þau síðustu voru tónleikarnir með Heimi Bjarna 7. apríl og stóru Björgvins tónleikarnir 10. apríl. Með vortónleikum og aðalfundi í kjölfarið lýkur starfsárinu formlega, þó nokkur tilfallandi verkefni séu alltaf yfir sumartímann. Gleðilegt sumar!