13.05.2009
Karlakór Akureyrar-Geysir heldur tvenna tónleika í Eyjafirði, dagana 15. og 16. maí. Vorið er uppskerutími KAG, þegar strangar æfingar vetrarins
skila sér í söng og gleði með hækkandi sól. Hápunktur starfsársins eru vortónleikar KAG í Glerárkirkju á Akureyri.
Daginn áður er venjan að taka forskot á sæluna og syngja sömu dagskrá á öðrum stað.
10.05.2009
Karlakórinn Jökull kom í heimsókn til okkar KAG-manna um helgina og saman áttum við frábæra daga. Jöklarnir komu beint í
Glerárkirkju, eftir barning í rysjóttu veðri, og þar beið eftir þeim súpa og brauð. Eftir næringarnám voru konurnar sendar í
óvissuferð (inn í jólahús) meðan við karlarnir mátuðum pallana og æfðum sameiginleg lög.
06.05.2009
Karlakórinn Jökull, frá Hornafirði, er væntenlegur í söngferð til Norðurlands um næstu helgi. Þeir syngja á tónleikum
í Glerárkirkju á föstudagskvöld og njóta þar liðsinnis Karlakórs Akureyrar-Geysis, sem syngur með þeim nokkur lög. KAG
endurgeldur þar með greiðann frá því um daginn, þegar Jökull söng með þeim á tónleikum á Hornafirði.
Jökull syngur svo á tónleikum í Dalvíkurkirkju á laugardagskvöld.
01.05.2009
Karlakór Akureyrar - Geysir og Drengjakór Glerárkirkju sungu sundur og saman í Flugsafni Íslands að kvöldi fimmtudagsins 30. apríl. Hétu
tónleikarnir "Litli og Stóri læra að fljúga" Allir gestir urðu að fara annað hvort í gegn um græna eða rauða hliðið. Tveir
lögreglumenn gættu hliðanna og sáu til þess að allir gerðu rétt. Græna hliðið var fyrir alla velsyngjandi en það rauða fyrir
falska og laglausa.
26.04.2009
Áhugaverður og vonandi bráðskemmtilegur tónlistarviðburður verður í Flugsafni Íslands á Akureyrarflugvelli, þegar
Karlakór Akureyrar-Geysir og Drengjakór Glerárkirkju halda þar sameiginlega tónleika. Tónleikarnir verða fimmtudagskvöldið 30.
apríl, og hefjast klukkan 20.
19.04.2009
Karlakór Akureyrar - Geysir lagði af stað á föstudagsmorgun kl. níu í nokkuð langa og vel heppnaða söngferð. Byrjað á kaffistoppi
í Seli í Mývatnssveit og næst stoppað á Egilsstöðum. Þar fengum við aldeilis veislu í N1 sjoppunni, komum við í
"Mjólkurbúðinni" og fórum í viðtal í svæðisútvarpinu. Sungum þar fyrir austfirðinga "Þú álfu
vorrar".
17.04.2009
KAG eru að leggja af stað með fulla rútu af syngjandi hressum köllum Í dag verður farið langt. Borðað á Egilsstöðum, litið við
í Svæðisútvarpinu þar og síðan rúllað á Höfn í Hornafirði. Tónleikar þar í kvöld. Jöklarnir
taka á móti okkur með súpu og brauði.
Annað kvöld verða svo tónleikar með karlakórnum Drífanda á Egilsstöðum.
Aldeilis ferðaveðrið sem við fáum !
KAG - Syngjandi sælir...
14.04.2009
Karlakór Akureyrar-Geysir heldur í söngferð um Austurland 17. og 18. apríl og syngur á tónleikum á Hornafirði og
Egilsstöðum. Í ferðinni slæst KAG í för með félögum sínum í Karlakórnum Jökli á Hornafirði og
Karlakórnum Drífanda á Fljótsdalshéraði.
26.03.2009
Nú standa sem hæst æfingar fyrir vordagskrá Karlakórs Akureyrar-Geysis. Það stendur mikið til enda fjöldi tónleika og annarra
viðburða framundan. Vorið er viðburðaríkasti tími kórsins og æfingar hafa staðið í allan vetur.
08.03.2009
Árshátíð KAG var haldin í Lóni laugardaginn 7. mars og heppnaðist alveg stórvel! Maturinn var góður, hver rödd sá um að
skemmta öllum hinum og svo var dansað fram á rauða nótt!