Fréttir

Karlakór Akureyrar Geysir fagnaði 100 ára afmæli

Karlakórinn Geysir hóf starf á haustmánuðum árið 1922. Því var fagnað með tónleikum í Hofi 12. nóvember 2022

Afmælistónleikar laugardaginn 12. nóvember í Hofi

Til að fagna 100 ára samfelldu karlakórastarfi á Akureyri heldur Karlakór Akureyrar Geysir tónleika í Hofi laugardaginn 12. nóvember. Gamlir félagar eru sérstaklega hvattir til að taka þátt í hátíðinni - miðasala við innganginn og á mak.is

Karlakór Akureyrar Geysir byrjar vetrarstarfið.

Framundan er að ljúka 100 ára afmælisárinu - með tónleikum í Hofi laugardaginn 12. nóvember. Eldri félagar eru hvattir til að skrá sig á tónleika þannig að unnt verði að taka frá fyrir þá miða á sér-verði; 2 fyrir 1. (Fljótlega opnað fyrir pantanir). Áhugavert væri að fá umtalsverðan fjölda eldri félaga til að koma á svið með kórnum og syngja 1-2 lög og upplifa að nýju samhljóm í söng með öflugum karlakór.

Aðalfundur KAG 17. maí 2022

Fundurinn var haldinn í RKÍ salnum við Viðjulund sem hefur verið æfingahúsnæði kórsins sl. ár.

Fögnum vori með söng í Hofi 23. apríl 2022 kl 16

Karlakór Akureyrar Geysir hélt vortónleika í Hofi 23. apríl. Sérstakur gestur á tónleikunum var Andrea Gylfadóttir. Eftir langt hlé og lítinn söng eru þessir tónleikar upptaktur að 100 ára afmælisfögnuði kórsins sem verður með stærri viðburðum síðar á árinu. En í ár eru 100 ár frá því að Karlakórinn Geysir byrjaði starf sitt. Karlakór Akureyrar var síðan stofnaður árið 1929 - en frá árinu 1990 runnu þessir kórar saman í Karlakór Akureyrar Geysi.