Góðir gestir að austan

Drífa Sigurðardóttir, stjórnandi Drífanda og Zbigniew Zuchowicz, undirleikari
Drífa Sigurðardóttir, stjórnandi Drífanda og Zbigniew Zuchowicz, undirleikari
KAG fær góða heimsókn á næstunni þegar félagar í Karlakórnum Drífanda á Fljótsdalshéraði koma norður til Akureyrar. Eftir góða skoðunarferð um Eyjafjörðinn sameinast kórarnir á tónleikum í Glerárkirkju, laugardaginn 7. nóvember, kl. 16.  
Drífandi og Karlakór Akureyrar-Geysir skiptast gjarnan á að heimsækja hvorn annan með reglulegu millibili, enda góður vinskapur á millli þessara kóra. 

Tónleikarnir í Glerárkirkju 7. nóvember verða fyrstu tónleikar KAG á þessu starfsári.