Það vorar og sönghvötin magnast.

Það verður vonandi fullt hús í Glerárkirkju á vortónleikum 2011
Það verður vonandi fullt hús í Glerárkirkju á vortónleikum 2011
Nú styttist óðum í hápunkt starfsársins; vortónleika KAG. Þeir verða 20. og 21. maí. Þessa tónleika hafa KAG félagar undirbúið í allan vetur, í bland við fjölmörg önnur verkefni. Þau síðustu voru tónleikarnir með Heimi Bjarna 7. apríl og stóru Björgvins tónleikarnir 10. apríl. Með vortónleikum og aðalfundi í kjölfarið lýkur starfsárinu formlega, þó nokkur tilfallandi verkefni séu alltaf yfir sumartímann. Gleðilegt sumar!