Vortónleikar KAG

Komið er að hinum árlegu Vortónleikum Karlakórs Akureyrar-Geysis. Þeir verða í Glerárkirkju, laugardaginn 21. maí, klukkan 15. Vortónleikarnir eru hápunktur starfsárs KAG, uppskera mikillar vinnu undanfarinna mánaða.


Á tónleikunum að þessu sinni verður fjölbreytt efnisskrá; klassísk karlakórslög í bland við íslensk og erlend sönglög. Einsöngvarar á tónleikunum verða þrír: Jónas Þór Jónasson, Erlingur Arason og Magnús Felixson. Þá syngur kvartett nokkur lög.

Stjórnandi og undirleikari KAG er Valmar Väljaots.