Fréttir

Vortónleikarnir okkar...

Fyrri vortónleikarnir okkar voru haldnir í nýju menningarhúsi Dalvíkinga, Bergi, að kvöldi föstudagsins 14. maí, en þeir seinni að venju í Glerárkirkju seinni part laugardagsins 15. maí.  

Vortónleikar KAG

Karlakór Akureyrar-Geysir heldur vortónleika sína á Dalvík og Akureyri, 14. og 15. maí. Vortónleikar eru jafnan hápunktur starfsársins og þar fá tónleikagestir að heyra afrakstur æfinganna hjá KAG-félögum í vetur. 

Vorverkin í garðinum

Í kvöld mættu nokkrir vaskir KAG félagar í árlega vorvinnu á lóðinni umverfis Lón. Þar var klippt, rakað, sópað, spúlað, tínt rusl o.fl. Það skiptir auðvitað máli að umhverfi Lóns sé snyrtilegt og þannig er það svo sannarlega eftir þessa árangursríku kvöldstund. Stútfull kerra af greinum og allskyns rusli, eftir veturinn, er farin á haugana! Fleiri myndir hér.   

Gleðilegt sumar!

Sumardagurinn fyrsti er genginn í garð og veturinn fomlega að baki. Sumar og vetur frusu saman, sem á að vita á gott sumar. Við vonum að sjálfsögðu að svo verði. Næstu daga og vikur njóta félagar í Karlakór Akureyrar-Geysi árangurs af vetrarstarfinu, ströngum æfingum og söng við hin ýmsu tækifæri. Framundan eru söngferðir og vortónleikar, hápunktur starfsársins! 

Norðaustan þrír!

Karlakór Akureyrar-Geysir, Karlakórinn Drífandi og Karlakórinn Jökull efna til kóramóts á Vopnafirði og Egilsstöðum, föstudaginn 23. og laugardaginn 24. apríl. Undanfarin ár hafa þessir þrír vinakórar heimsótt hver annan landshorna á milli. Síðastliðið vor kom upp sú hugmynd að kórarnir tækju slaginn saman, hittust á “miðri leið” og héldu stóra tónleika.

KAG og Krossbandið

Að kvöldi sunnudagsins 28. mars tók karlakórinn þátt í kvöldguðsþjónustu í Glerárkirkju. Þessar athafnir eru með léttu sniði og í þetta sinn var það Krossbandið, sem sá um tónlistina. Hugmyndina að þessari samvinnu átti Snorri formaður, en hann er líka í Krossbandinu. Vel var mætt til messu og Helgi Hróbjartsson prestur skemmti sér vel. "Þetta var æðislegt" sagði hann í kaffinu á eftir.

Vor í lofti

Það var sannarlega vorhugur í KAG félögum á æfingu í kvöld! Snorri formaður dreifði blaði með lista yfir þau lög sem nú verða æfð í þaula fyrir vortónleikana 14. og 15. maí. Reyndar verður ein söngferð farin austur á land áður, 23. og 24. apríl, nokkurskonar "generalprufa" þar sem hluti af vorprógramminu verður flutt.  

Og við trölluðum fyrir fullu húsi...

 Laugardaginn 20. mars hélt Karlakór Akureyrar-Geysir sitt árvissa "Hæ. Tröllum..." mót í Glerárkirkju. Þátttakendur að þessu sinni auk okkar voru Karlakór Bólstaðarhlíðar, Karlakór Eyjafjarðar og Karlakórinn Hreimur. Mættu allir kórarnir fyrir klukkan tíu á tónleikastað til að renna yfir sameiginlegu lögin. Þeir makar sem mættu voru sendir í óvissuferð um bæinn og komu við í nýja menningarhúsinu Hofi og Minjasafninu á Akureyri. 

Allt að gerast - Eyfirðingar í heimsókn

Nágrannar okkar úr Karlakór Eyjafjarðar komu í Lón í kvöld og sungu með okkur í gegnum sameiginlegu lögin á "Hæ. Tröllum!" mótinu um næstu helgi. Petra Björk, stjórnandi Eyfirðinga, og Valmar, stjórnandi KAG, stjórnuðu kórunum til skiptis á æfingunni og léku undir eftir þörfum. 

Sungið með þingeyskum Hreim...i

Miðvikudagsæfing KAG þessa vikuna var óvenjuleg. Í stað þess að skjótast á milli húsa og æfa í Lóni, keyrðum við austur í Aðaldal og heimsóttum félaga okkar í Karlakórnum Hreimi. Þar æfðum við með þeim lögin sem karlakórarnir fjórir á "Hæ. Tröllum!" mótinu 20. mars, ætla að syngja saman. Þetta var skemmtileg ferð...söngæfing, en ekki síst til þess ætluð að hrista karlana saman.