Sungið með þingeyskum Hreim...i

Ídalir, heimavöllur Karlakórsins Hreims
Ídalir, heimavöllur Karlakórsins Hreims
Miðvikudagsæfing KAG þessa vikuna var óvenjuleg. Í stað þess að skjótast á milli húsa og æfa í Lóni, keyrðum við austur í Aðaldal og heimsóttum félaga okkar í Karlakórnum Hreimi. Þar æfðum við með þeim lögin sem karlakórarnir fjórir á "Hæ. Tröllum!" mótinu 20. mars, ætla að syngja saman. Þetta var skemmtileg ferð...söngæfing, en ekki síst til þess ætluð að hrista karlana saman. Og það verður meira af svo góðu, því félagar okkar og vinir í Karlakór Eyjafjarðar, koma í Lón á næstu æfingu og þá verður enn meiri samsöngur! "Hæ tröllum á meðan við tórum! Syngjum, dönsum, daginn út og daginn inn..........."