SÍK með nýjan vef

Nýr vefur Sambands íslenskra karlakóra er kominn í loftið. Þar er að finna ítarlegar upplýsingar um SÍK og söngfélögin tvö; Heklu og Kötlu. Þá eru á vefnum upplýsingar um alla aðildarkóra SÍK og tenging inn á vefi þeirra kóra sem eru á netinu. Þá eru tenglar á ýmisskonar tónlistartengda starfsemi. 

Vefur SÍK er unninn hjá Stefnu á Akureyri og keyrður á vefkerfinu Moya, því sama og kag.is. Það er full ástæða til að óska íslensku karlakórasamfélagi til hamingju með nýja vefinn!    

www.sikk.is