Gleðileg jól og gæfuríkt nýtt ár!

Þessir glaðhlakkalegu jólasveinar á Glerártorgi sungu ekki með KAG þar, en hefðu eflaust sómt sér ve…
Þessir glaðhlakkalegu jólasveinar á Glerártorgi sungu ekki með KAG þar, en hefðu eflaust sómt sér vel á meðal okkar karlanna!
Félagar í Karlakór Akureyrar-Geysi óska öllum velunnurum sínum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Vonandi sjáum við sem flesta á tónleikum okkar á árinu 2009.

Jól og áramót eru annasamur tími hjá kórum landsins og KAG er þar engin undantekning. Það hefur mikið verið sungið undanfarið, enda jólin tími fagurra söngva.

KAG hefur t.d. sungið á jólatónleikum í Akureyrarkirkju, á kaffitónleikum í Lóni, á útifundi á Ráðhústorgi og tvisvar á Glerártorgi. Á aðfangadag var svo árlegur söngur fyrir vistfólk og sjúklinga á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Á gamlársdag hittumst við félagarnir svo í Lóni og eigum saman góða stund áður en við fögnum áramótunum.