Æft fyrir Heklumót

Frá Heklumóti á Akureyri 2004
Frá Heklumóti á Akureyri 2004

Þessa dagana æfir KAG fyrir söngmót Heklu, Sambands norðlenskra karlakóra, sem haldið verður á Húsavík 1. nóvember næstkomandi. Þangað hafa tíu kórar boðað komu sína, en reikna má með að 350 karlar hefji þar upp raust sína.

Í Heklu eru karlakórar á svæðinu frá Ísafirði að Egilsstöðum og á Heklumóti flytur hver kór sitt eigið prógram en svo sameinast kórarnir í einn risakór sem flytur nokkur lög sem kórarnir hafa æft hver í sínu lagi.