Æfingar hafnar á nýju ári

KAG æfir í félagsheimilinu Lóni
KAG æfir í félagsheimilinu Lóni
Þá er allt komið á fullt hjá KAG eftir jólafrí. Fullt af nýjum lögum komin á dagskrá og eldri lög rifjuð upp. Næstu mánuðir verða viðburðaríkir og ná væntanlega hámarki á vortónleikum KAG.


Það er góð mæting þessa fyrstu daga á nýju ári en nýir félagar eru alltaf velkomnir. Við hvetjum þá, sem langar að prófa að syngja í karlakór, að hafa samband við okkur eða bara að mæta í Lón!

KAG æfir á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 20-22.