„Hæ-Tröllum“ haldið í fimmta sinn

Frá
Frá "Hæ-Tröllum" í Glerárkirkju 2012
Kóramótið „Hæ-Tröllum" verður haldið í Glerárkirkju næstkomandi laugardag, kl. 17:00. Þetta er í fimmta sinn sem Karlakór Akureyrar-Geysir stefnir til Akureyrar karlakórum allsstaðar að af landinu.


„Hæ-Tröllum“ var fyrst haldið árið 2006 og hefur síðan verið haldið annað hvert ár. Þátttakendur að þessu sinni eru, auk Karlakórs Akureyrar-Geysis; Karlakór Dalvíkur, Karlakórinn Stefnir úr Mosfellsbæ og Karlakórinn Drífandi af Fljótsdalshéraði. Samtals koma þarna saman vel á annað hundrað söngmenn. 

Á mótinu flytur hver kór sína dagskrá og syngur 4-5 lög. Síðan sameina kórarnir krafta sína og flytja 
nokkur stórvirki úr sögu íslensks karlakórasöngs. Þarna gefst því kærkomið tækifæri til að heyra þessi verk flutt af stórum og öflugum kór. Sannkölluð söngveisla!