1. Við erum í KAG því okkur finnst gaman að syngja í kór. Eða bara einfaldlega gaman að syngja. Það finnst líka hinum
félögunum í kórnum.
2. Mætum á réttum tíma í Lón, og verum tilbúnir klukkan átta. Þá byrjar æfingin. Að koma nokkrum
mínútum of seint truflar æfinguna og er oftast óþarfi.
3. Mætingar hjá okkur þurfa að vera góðar. Koma því ofar í forgangsröðina. Allir græða á því. Berum
virðingu fyrir æfingatíma okkar sjálfra og félaganna.
4. Hjálpum nýliðunum okkar. Munum að hafa þá inni í röddinni á milli reyndra söngmanna og verum vakandi fyrir að aðstoða
þá og leiðbeina eftir þörfum.
5. Ekki finnast maður endalaust þurfa að gera athugasemdir við allt, sem sagt er og vera fyndinn. Það tefur æfinguna og truflar söngstjórann
í sínu starfi.
6. Hlustum á stjórnandann með athygli, þegar hann bendir okkur á eitthvað eða lagar. Getum rétt upp hönd, ef við þurfum að
spyrja hann um eitthvert atriði.
7. Þær nótur, sem menn fá, eru þær nótur, sem á að syngja. Alveg sama hvað hefur verið áður. Eilíft þjark
um “réttar” nótur er afar hvimleitt og tefjandi.
8. Spjöllum í pásunni og veltum þá upp hugsanlegum atriðum, sem þarf að ræða. Að öðru leyti takmörkum tal á
æfingum. Blaðrið eyðir dýrmætum æfingatíma.
9. Við eyðum vetrinum í æfingar fyrir tónleika og aðrar uppákomur. Ef KAG er með auglýsta tónleika, þá eiga menn
að mæta !!! Svo einfalt er það nú.
10. Þegar raddformenn hringja út, eru þeir ekki að athuga, hve margir “ætli” að mæta. Það eiga allir að vera með.
Látum þá vita, ef við komumst ekki á æfingu.
11. Þótt um áhugamannakór sé að ræða er metnaður nauðsynlegur, Hann kemur af sjálfu sér, ef menn leggja sig fram og
þá er líka meira gaman.
12. Áfengi á enga samleið með æfingum né tónleikum og er einfaldlega bannvara. Virðum það! Allt í lagi að fá
sér í tána á eftir ef menn vilja.
13. Ef menn eru með möppur, þarf að halda þeim þannig að þeir geti líka fylgst með söngstjóra. Hann er að
sjálfsögðu aðal-málið og þarf 100 % áhorf.
14. Gott skap og jákvæðni eru ómissandi þættir í kringum allt félagsstarf. Við þurfum og eigum að standa þétt saman
um að gera kórinn okkar betri!
15. Verum vakandi fyrir að ná í nýja meðlimi. Tölum vel um KAG sem og aðra kóra. Það græða allir á því
að vera jákvæðir og fyrst og fremst maður sjálfur.
Flýtilyklar
Til umhugsunar fyrir KAG félaga
Teljari
Í dag: 1
Samtals: 8928
Samtals: 8928








