Sungið til styrktar Aflinu
kag - 05.nóvember 2010

KAG á tónleikunum í Akureyrarkirkju
Auk Karlakórs Akureyrar-Geysis komu þar fram Kirkjukór Glerárkirkju, Bryndís Ásmundsdóttir, Óskar Pétursson, Rúnar Eff og Heimir Bjarni Ingimarsson ásamt hljómsveit. Valmar okkar Väljaots var í stóru hlutverki þetta kvöld, stjórnaði tveimur kórum og lék undir á píanó.
Fjölmargir lögðu leið sína á tónleikana í Akureyrarkirkju og fín stemmning var í kirkjunni þetta kvöld.








