KAG gengur til liðs við Frostrósir!
kag - 02.október 2010

Karlakór Akureyrar-Geysir syngur á jólatónleikum
Frostrósa í Hofi á Akureyri, föstudaginn 17. desember. Þessir risatónleikar verða á meðal glæsilegustu viðburða í Hofi
á árinu, þar sem á þriðja hundrað manns koma fram í glæsilegri umgjörð þessarar miklu
tónlistarhátíðar.
Á tónleikum Frostrósa í Hofi syngja Karlakór Akureyrar-Geysir, félagar úr Vox feminae, félagar úr Íslenska gospelkórnum og Skólakór Hrafnagilsskóla, með einsöngvurunum. Vel yfir 200 manns á risasviði í hátíðlegri umgjörð sem á vart sinn líka í íslensku tónleikahaldi!
www.frostrosir.is








