Frostrósaverkefnið tókst vel
kag - 26.desember 2011

Karlarnir einbeittir á lokaæfingunni
Þar stigu á svið vel á annað hundrað tónlistamenn og sungu og léku fyrir fullu húsi, hátt í 2000 manns.
Einsöngvarar á tónleikunum voru: Björg Þórhallsdóttir, Erna Hrönn, Friðrik Ómar, Garðar Thór Cortes, Guðrún Árný, Hera Björk, Ína Valgerður, Margrét Eir, Matti Matt, Óskar Pétursson og Valgerður Guðna.
Kórarnir sem komu fram voru: Karlakór Akureyrar - Geysir, Vox Nordica, Kór Menntaskólans á Akureyri, Skólakór Hrafnagilsskóla, félagar úr Íslenska Gospelkórnum og Barnakór Frostrósa.
Stórhljómsveit Frostrósa lék svo undir. Tónlistarstjóri var Karl O. Olgeirsson og stjórnandi Árni Harðarson.
Fleiri myndir hér.








