1. des. Hátíð í Lóni
kag - 02.desember 2010
Jónas í góðra vina hóp
Veisluna setti formaður um hálf átta, bauð alla velkomna og sérstaklega séra Svavar
Alfreð, en prestur er alltaf með okkur þetta kvöld. Mættir voru tæplega hundrað manns. Fljótlega var tekið til við kjötið frá
Kjarnafæði, kartöflurnar frá Kela í Höfða, jafninginn frá Bautanum, laufabrauðið úr Brúarbakaríinu, grænu baunirnar og
rauðkálið. á eftir var boðið upp á kaffi og Lindu-konfekt. Menn voru farnir að draga á eftir sér ýstruna, svei mér
þá. Valmar og Snorri léku undir fjöldasöng milli liða og tóku gestir að sjálfsögðu hressilega undir.
Svavar Alfreð hafði ætlað sér að vera með einhverja sérstaka uppákomu sem
tengdist kertum, en við borðið hans mynduðust fljótt umræður um "gluggann í Akureyrarkirkju", þ.e.a.s. þennan frá Coventry. Hann
ákvað að segja okkur bara söguna af rúðunni og var það afar áhugavert. Það er aldrei að vita hverju þeir taka uppá
prestarnir, þegar þeir koma til okkar á þessu kvöldi.
Þegar líða tók á kvöldið kom að föstum lið. Það voru þeir
Alli Páls og Snorri, sem stóðu fyrir bögglauppboði saman og fóru svolítið nýja leið að þessu sinni. Völdu þeir sér
tvo fulltrúa hvor og voru þeir látnir "bjóða upp pakka" sem þeir höfðu valið sér. Var það ansi gaman og hressilegt á stundum.
Að síðustu buðu Alli og Snorri upp hvor sinn pakkann og skilaði þetta uppátæki heilmiklum auðæfum.
Þá voru kallaðir upp raddformenn allir: Svenni, Gósi, Tommi og Smári. Þegar þeir
voru komnir, fannst okkur vanta einn til viðbótar og fannst Haraldur Höskuldsson húsvörður passa vel inn í þennan föngulega hóp. Þeir
fengu allir væna rauðvínsflösku til að nota með jólasteikinni og þakkir fyrir sín störf það sem af er vetri.
Menn sátu svo að vild og spjölluðu saman fram eftir kvöldi en allt var búið fyrir ellefu.
Enn eitt gott jólakvöld KAG að baki. Allir fóru heim saddir og sælir.








